Stórmót Þjálfa verður haldið haldið á Einarsstaðavelli helgina 12. og 13. ágúst
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
A-flokki * B-flokki * Tölti * Skeiði Einnig í barna- unglinga- ungmenna- og öldungaflokki. Miðaverð fyrir báða dagana er aðeins kr. 3000.- fyrir fullorðna en frítt fyrir 14 ára og yngri og einnig fyrir 67 ára og eldri. Þeir sem kjósa að koma einungis á sunnudeginum greiða kr. 1500.- Skráningar fara fram í gegnum Sportfeng og er ekkert skráningargjald nema í tölt (kr. 3000) og í skeið (kr. 1500).
Lokað verður fyrir skráningar miðvikudaginn 9. ágúst kl. 22.00
Hægt verður að fylgjast með dagskrá og ráslistum á heimasíðu félagsins: www.thjalfi.is